Reyndar vita það nú flestir sem þekkja mig hverjar þessar fréttir
eru, en svona fyrir ykkur hin sem ég hitti ekki reglulega, þá eru
fréttirnar þær að Baugur Group veitti mér myndarlegan styrk til að
náms í Bandaríkjunum næsta vetur. Ég á varla til orða að
lýsa ánægju minni og þakklæti fyrir þetta. Þessi styrkur er
auðvitað mikil hvatning fyrir mig að fara nú og gera mitt besta í
þessum erfiða bransa, og fyrir það er ég mjög þakklátur. Takk
Baugur
Nú það styttist óðum í Bandaríkjaferð, og ég er farinn að hlakka
mikið til. Ég hef aldrei verið í USA að sumri til og ég
efast ekki um að það verði viðbjóðslega rakt og hræðilegt, en ég
ætla að skemmta mér mjög vel eins og alltaf. Enda er ég að
fara prófa eitthvað alveg glænýtt og þá er alltaf gaman.
Og svo að öðru, næstu helgi er hún Soffía mín að útskrifast úr
Háskólanum og við ætlum í kjölfarið á því að halda sameiginlega
veislu. Þetta verður voða stór veisla og ég vona bara að
veðrið verði gott, því þá get ég notað 20 fermetra svalirnar mínar

En eins og alltaf gegnur þetta ekki hnökralaust fyrir sig,
því flísarnar á baðherbergisgólfinu tóku upp á því um daginn að
lyftast upp, þannig að ekki var hægt að loka baðherberginu, það er
nú ekki hægt að bjóða gestum upp á slíkt. En ætli það verði
ekki bara eitthvað skítamix í gangi með það. Og svo er
þjónustuver Vodafone að fara flytja aðfararnótt föstudags, þannig
að maður verður að vinna alla þá nótt og svo líklega á einhverju
standby á Laugardeginum, en ég vona nú að við náum að skipuleggja
þetta þannig að klárist á föstudaginn.
Jæja, nóg í bili frænka og svili.