|
|
22.03.2005 22:58:35 / egill
Þar sem ég verð í hinum gullfallegu Bandaríkjum alla næstu viku tel
ég rétt að segja frá því að ég mun reyna að gera grein fyrir því
eins og síðast, en stundum er bara ekki ekki allt nógu mikilvægt
til aðsegja frá því. Svo langar mig líka að benda þeim sem eru ekki
eins glöggir og hinir að ég nota páskaþema á blogginu mínu allan
ársins hring, þá spara ég mér það að skipta á hverjum páskum.
Mál dagsins
Þar sem ég sit hér og hlusta á Kristján Jóhannsson skúbba hverjum
tóninum á fætur öðrum, verður mér hugsað til þess hversu mikil fífl
sitja á alþingi Íslendinga þetta er svo sorglegt að maður getur
ekki grátið. Heimskan og ruglið á alþingi okkar er orðið svo
yfirgengilegt að mér finnst ganga yfir allt velsæmi. Við kusum
þessi fífl, og við þurfum að lifa með þeim. Að kjósa sér þingflokk
er fyrir mér eins og að kjósa hvar á jarðsprengjusvæðinu maður vill
búa. Heimskan og ruglið í þessu fólki er farin að jaðra við það
allra yfirgengilegasta sem manni dettur ekki í hug, því það er svo
yfirgengilegt. Til hvers erum við eiginlega að kjósa??? Ég hef
verið skammaður fyrir að fara ekki að kjósa, og ég bara skil ekki
hvað mönnum gengur til við slíkar yfirlýsingar. Þetta er fyrir mér
eins og að gefa 3 valmöguleika, annaðhvort læturðu skjóta þig eða
skýtur þig sjálfur, nú eða þú velur þriðja möguleikann, að lifa og
gefa þar með skít í þetta bull. Að kjósa er vissulega réttur sem ég
hef sem "frjáls maður" í "lýðræðisríki", en afsakið mig ef mér
finnst ekkert lýðræðislegt við það að velja hvort maður vilji borga
hærri skatta eða hærri skatta, nú eða hvort maður vilji fá
geðsjúklinginn Bobby Fischer, til landsins eða fá hann til
landsins. Ég kominn með það mikið leið á stjórnmálum, og hvernig er
farið með okkur að ég kæri mig bara ekki lengur um að taka þátt í
þessu, sama hvað ég kýs, þá verða alltaf fávitar í þessu stafi, því
það virðist ekki þurfi mikil gáfumenni, né heilbrigða skynsemi til
að geta verið á þingi. Ég ætla því að sniðganga næstu kosningar,
því hvernig sem á það er litið mun ég tapa. Þann hefur það alltaf
verið á minni stuttu æfi. Ég nenni ekki að sóa mínum tíma að velja
eitt vanhæft fíflið umfram annað á þetta asnalega þing okkar
bananafávitanna. Þetta er bara búið að ganga of langt, of lengi. Og
þetta mun allt falla um sjálft sig á endanum, sagan segir okkur
það, ég bara bíð.
Hvað varðar satanistan Bobby Fischer, þá er nánast óskiljanlegt
hvaða morkna drullumygla er eiginlega í hausnum á heimska alþingi.
Það er svo ótrúlega margt rangt við það að hleypa þessum manni til
landsins, að mér hreinlega býður við því að búa hérna, og eins
ómálefnalegt og það kann að hljóma þá vil ég bara segja "fari
alþingi íslendinga grábölvað alla leið í svartasta víti". Eina
lýðræðið sem ég myndi beygja mig undir er ef allir íbúar landsins
fengju að kjósa um svona mál með einhverskonar rafrænu kerfi sem
ekki væri hægt að svindla á. En það er svosem bara heimskulegur
draumur hjá mér.
Slúður dagsins
Skákmeistarinn Bobby Fischer er
kominn með flott einbýlshús á Arnarnesinu, hann er einnig kominn
með fast sæti í ráðgjafanefns alþingis næstu 10 árin. Aðspurður
segir Sæmundur vinur hans að Bobby hafi það bara gott, og er
ánægður með íslenska félagsmálakerfið, hann gefur því toppeinkun og
hlakkar til að koma til Íslands. Bobby verður til að mynda skráður
strax á launaskrá hjá ríkinu sem stórmeistari, og hann á að
sjálfsögðu fullan rétta á því. Auk þess mun hann fá reglulegar
greiðslur frá tryggingastofnun vegna örorku sem hann hlaut í
fangelsi.
»
17.03.2005 08:05:10 / egill
Ennþá er ég með flensu andskotann og ég skil bara ekkert í
þessu! Ætlar þetta ekki að fara yfirgefa mig?
Vona það, þar sem ég er að fara til USA eftir rúma viku.
Ég hlakka ekkert lítið til að hitta David Jones og læra hjá
honum enn og aftur. Sama hvað fólk kann að segja um
söngtækni, þá er þetta maður sem ég hef ekki enn séð kenna þetta
vitlaust, enda nýtur maðurinn gífurlegs fylgis, sökum þess.
Shirely Verret sem er mjög flottur sópran og syngur við
Metrópolitan óperuna í NY, hún segir að á öllum sínum ferli og af
öllum söngkennurunum sem hún hefur haft, sé David aðeins einn af 2
kennurum sem hún treystir fyrir röddinni sinni. Og það
eru ekki slæm meðmæli. Ég er búinn að hitta David
í 3 ár og hann er gjörsamlega búinn að umbreyta söngröddinni minni
á þeim tíma. Ég er núna að breiða út boðskapinn,
því mig dauðlangar að fá hann hingað til
lands. Hann er sjálfur búinn að lýsa yfir miklum áhuga á
því. En auðvitað þarf að vera hægt að tryggja kallinum nóg að
gera.
Ég er búin að plögga hann mjög mikið hér heima, og nú
þegar, er Garðar Thor búinn að fara til hans, allavega tvisvar
og líkaði mjög vel Fleiri nemendur úr söngskólanum eru
einnig búnir að panta tíma hjá honum. Þetta er
náttúrlega bara frábært.
Nú, ég er að fara á Agureyri, á föstudaginn til að koma öllu í
stand fyrir verslun sem mitt ástkæra fyrirtæki er að fara opna þar,
það verður eflaust skemmtileg stund. Nú svo flýg ég til baka
á laugardeginum klukkan 15 og ætti því að ná í tæka tíð í partýið
mikla sem óperudeildin er að fara halda í Laugarásnum hinum
fallega.
Slúður dagsins,
Foreldra Samtök Íslands hafa tekið þá ákveörðun að láta
banna allt barnaefni með íslensku tali, þar sem þeim finnst
íslenskir raddleikarar ofleika of mikið. Þetta veldur því að
börnin eru byrjuð að tala eins og fifl og það vilja ekki Foreldra
Samtökin.
»
11.03.2005 17:35:46 / egill
Ég vil þakka öllum sem sáu sér fært að mæta í Salinn sl. sunnudag.
Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og ótrúlega lærdómsríkt.
Ég vil samt bölva til andskotans, flensu andskotanum sem er
búinn að vera fastur í mér í rúmar 2 vikur. Þetta er svo að
ná hámarki núna og ég er ekki með fallega rödd þessa dagana.
En hún dugar.
Við óperudeildarliðið ætlum svo að skella okkur í sumarbústað á
einn af fallegustu stöðum landsins, Laugarás í Biskupstungum, næstu
helgi. Það verður nú gaman, þar sem ég uppalinn í Laugarásnum
ásamt félögum mínum í Laugaráskvartettinum.
En allavega, að allt öðru. Ég var staddur á einhverju
prógrammi í gær þar sem var verið að kenna manni að fylla inn á
skattframtalið. Hversu heimskulegt er þetta eiginlega
orðið þetta skattadrasl. Maður er að borga óhugnanlegar
fjárhæðir í skatt á hverju ári, en samt þarf maður að andskotast
til að gera grein fyrir öllu sem maður er búinn að gera.
Þetta er mun verri forræðishyggja heldur en andskotans
reykingaaumingjarnir eru að væla yfir. Þetta er bara dónalegt
af yfirvöldum. Mér finnst að ef maður er sjálfstæður
atvinnurekandi, þá eigi maður að standa í svona bulli, en ef maður
er bara einstaklingur í vinnu hjá fyrir tæki sem sannanlega borgar
skattana manns, þá eigi maður bara að fá að vera í
friði. Hitt er allt borðleggjandi. Ég meina
ég keypti hús og það kostaði X mikin pening, Það kemur fram á
öllum pappírum, til hvers þarf ég að gera grein fyrir því hvernig
ég keypti. Ég keypti bara og borga mína skatta og
skyldur. Afhverju þarf að gera þetta flókið? Ég
veit að þetta er öllu flóknara en það lítur út fyrir að vera, en
þetta er samt fáránlegt.
Slúður dagsins
Nú liggur ljóst fyrir að Hildur vinnur Idolið. Þetta er
einfallt að finna út þar sem búið er að svindla henni í fremstu
raðir keppninnar þar sem langafi hennar er föðurbróðir afa langömmu
systyrstjúpdóttur ætleiddrar móður hennar. Þetta getur hvaða
fífl sem er séð í hendi sér.
»
03.03.2005 21:53:50 / egill
Ég vil bara byrja á að banda fólki á að mikil skemmtun er framundan á sunnudaginn nk. þar sem ég og samnemendur mínir í óperudeilds Söngskólans í Reykjavík munum setja á svið flott brot úr skemmtilegum óperum. Þarna mun heyrast ástardúettinn úr La Boheme, La Donna e Mobile, og frægasti kvartett óperusögunnar úr Rigoletto. En áfram um tónlist, í þetta skipti verð ég að deila með ykkur leiðinlegasta lagi í heiminum úr sjónvarpsþættinum fólk. Þetta er loka lagið leiðnlegaMeira seinna, allir að hringja í salinn og panta miða.
»
|
|