Hvað er eiginlega að?
06.01.2008 00:11:03 / egill

FLUTTUR um BLOGG og BORG

Nýtt blogg má finna á:
http://egilltenor.blogspot.com/

 Þetta verður mun virkara en þetta hérna. 

 Sé ykkur þar, gleðilegt nýtt ár!

Kv
Egill


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 09:50:46 / egill

Racismi og kynþáttahatur og kynþáttafordómar??


Enn og aftur tekst forpokuðum einstaklingum að missa sig í að setja einhver mál í galdrabrennu.  Nú er það bókin "Tíu litlir negrastrákar", ég er bara ekki svo forpokaður að ég sé að sjá djöfulinn í hverju horni (þó hef ég nú leyft mér að tuða yfir hinu og þessu:)) og er svo saklaus, greinilega, að umræða sem aftuhaldsseggir og sjálfskipaðar siðferðislöggur koma af stað fer bara fyrir brjóstið á mér.   En ekki vegna þess að ég skil ekki út á hvað þessi saga gengur eða á hvaða tíma þetta var skrifað.  Ég man eftir þessari bók frá því að ég var lítill, ekki man ég eftir því að hafa fundið fyrir einhverju hatri í garð sérstakra kynþátta eftir lesturinn, enda var ég ekki það gamall, að ég skildi hvað væri verið að gera.   Börn skilja þetta ekki sem kynþáttahatur, nema bara vegna þess að forpokað lið segir þeim að þetta sé það.  Og það er í raun stóra vandamálið, hlutirnir eru ekki vandamál fyrr en einhver ákveður að gera þá að vandamáli.  Þetta er bara staðreynd.  Afhverju er tildæmis ekki leyfilegt að vera allsber á almannafæri??  Hvern er það í RAUN að skaða??  Hvað er það sem er svo ljótt við það??  Jamm það er ósiðlegt og ljótt, vegna þess að það hefur verið ákveðið að banna þetta og gera það einhverju taboo, þrátt fyrir að þetta sé það eðlilegasta í heiminum.

Þetta er þvímiður hluti af menningarheimi okkar og hefur endurútgáfa þessarar bókar ekkert með kynþáttahatur að gera, frekar en að bækur um megrun hafa ekkert með fitubolluhatur að gera.  Það má einfaldlega líta á þetta sem ótrúlega innsýn í hugsanagang fólks fyrir einhverju síðan.    Þegar ég les lýsingar fólks á því hversu hneykslanlegt þetta er þá kemur strax upp í hugan, ruglið sem fór í gang í sambandi við Smáralindarbæklingin fræga, einhver ákvað að sjá djöfulinn í hverju horni.  Og það er nákvæmlega það sama og er að gerast hérna.  Þetta er alltaf sama sagan, fólk er svo hrætt um að ef siðferðiskennd þeirra er særð, að þá hljóti svo að vera með alla aðra, þetta er eflaust sama fólkið og hringir í RÚV ef það sést eitthvað "klám" í sjónvarpinu.  Við erum, hægt og rólega, að verða eitthvað gersneytt samfélag, þar sem ekki er rúm fyrir fjölbreytta menningu og skoðanir, nema auðvitað þær sem siðferðislöggan er búin að ákveða að eigi upp á pallborðið.   Svo er það fyndna við þetta alltsaman að þetta eru svona hlutir sem eru pólitískt réttir, andstaðan við áðurnefnda bók helgast af sterílli pólitískri rétthugsun.  Það eru ekki ný sannindi, að ef þú segir einhverjum eitthvað nógu oft, þá verður það sannleikur, og það er það sem er að gerast hérna, við erum hægt og rólega að aðhyllast eitthvað sem okkur er sagt að aðhyllast án þess að skoða ástæður eða íhuga aðra möguleika.   Kannast einhver við Adolf Hitler í þessu samhengi?  Hvernig stendur á því að svona stórt þjóðfélag gerði það sem gert var í Helförinni??  Vegna þess að þeim var sagt það nógu oft að þetta væri svona og þetta væri það rétta að gera.  Ég sé ekkert athugavert við þessa endurútgáfu, og fagna henni eins og öllu öðru sem hjápar til við að sýna okkur hvernig heimi við búum í.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 15:02:20 / egill

Fyrirbæri

http://www.facebook.com 

Allir að skrá sig :)   Mjög gaman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 15:58:19 / egill

Festspiele 2007 - Die Meistersinger von Nütrnberg - R.Wagner

Die Meisternsinger von Nürnberg

Þá er komið að síðustu sýningu þessarar ágætu ferðar minnar til Bayreuth.  Ferðin hófst að vanda á rútuferð frá gistiheimilinu upp að Festspielhaus.  Þetta hófst allt á kunnuglegan hátt nema maður sá mun fleiri með sessur og einhver aukabúnað til að auðvelda sér setuna í þessum erfiðu sætum, þetta er jú um 5 tíma ópera.  Ég fór með upplásanlega höfuðhvílu, svona eins og maður notar í flugvélum, lestum osfrv,  Það er ótrúlegt hvað það styður vel við bakið.   Sýningin hófst og sviðið var mikilfenglegt og mjög fallegt.  Lýsingin var þó ekki spes, enda var mikið um samtalssenur í fyrsta þætti.  Ekki virtist þetta ætla að verða mjög spennadi, en annað kom í ljós.  Í lok fyrsta þáttar komu kórmeðlimir og skvettu málningu af svölum sviðsins yfir miðjuna þar sem aðalleikararnir voru, og fólk dansaði einhvern tryllingslegan dans á meðan.  Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikið var púað að loknum fyrsta þætti.  Mér þóttir þetta sjálfum bráðgóð skemmtun, og alls ekki svo aðskilið söguþræðinum, því það sem var verið að gera er að meistarasöngvararnir voru líka myndlistamenn, og það var skemmtilegt að sjá hvernig myndlist og tónlist voru í raun sett saman í sama pottinn.  Kom vel út.

Nú svo hefst annar þáttur, og þar voru endalausar talsenur sem reynt var að "stytta" með því að hafa alskyns fíflalæti inn á milli, sem mér fannst takast bara ágætlega.  Þátturinn endaði svo á því að það rigndi hvítum skóm á fólkið á sviðinu og litlu reglubókum meistarasöngvarananna var grýtt út um allt svið.  Á sama tíma dönsuðu karlmenn á nærbuxunum með málningarfötur á hausnum, og brjóststyttur, sem voru á sviðinu lifnuðu við og fóru að "vanga".  þetta var einnig mjög skemmilegt áhorfs.  En fólk ætlaði alveg að missa sig í að púa að loknum þessum þætti, mér leið hálf illa þar sem ég sat.  Huggaði mig þó við það að það var bara gamla fólkið sem púaði.

Þriðji þáttur hófst með ágætum, en svo klikkaði eitthvað á sviðinu þannig að ein karakterinn átti erfitt með að fara út, þá heyrðust hneykslunarstunur í gamla pakkinu fyrir aftan mig, sem var gjörsamlega búið að tuða út í eitt alla sýninguna.  Svo fór þetta að verða furðulegt, þegar Walther var búinn að vinna keppnina, þá fór keppinautur hans að galdra fram, úr einhverri kistu sem dregin var fram á mitt svið, alsberann karlmann og uppblásna dúkku?!?!?  Þegar kistann opnaðist flæddu um sviðið epli og gaurinn stoð þarna allsber og reifst um dúkkuna við keppinautinn.  Nú svo komu á svið fólk með risastóra hausa og fór að dansa allskyns erótískan dans, sem endaði svo með því að tveir af risastóru hausunum fóru úr að ofan og voru þá berar konur(ekki það að það hafi eitthvað farið í taugarnar á mér :)).  Karlkyns hausarnir settu þá á sig horn á sig framanverðan, þannig að það leit út að þeir væru með fullri reisn.  Síðan voru ýmsar kynlífsathafnir framreiddar fyrir okkur sem fylgdumst með.  Tilganginn með þessu skil ég ekki, en Wagner er tímafrekur og þetta hveru verið ætlað til uppfyllingar væntanlega. 

Tónlistarlega og sönglega var þetta langversta sýningin af þessum þremur sem ég sá.  Baritónin sem söng Hans Sachs, Franz Hawlata, var enganveginn að ráða við þetta hlutverk, og tenórnn sem söng Walther, Klaus Florian Voigt,  var að mínu mati allt of léttur fyrir þetta hlutverk(þó þetta sé nú ekki Heldentenor rulla), hann réði illa við dýpstu tónana í frægustu tenór aríu þessa verks, "Morgenlich leuchtend in rosingen Schein", það skal ekki tekið af honum að þetta er flottur lýrískur tenór.  Sópraninn, Eva, Amanda Mace,  klúðraði alveg í lokinn og var talsvert undir tóni í sínum söng á kafla.  Hans Sachs klúðraði bigtime fallegu pianissimo á mjög viðkvæmum stað í verkinu.  Hljómsveitin átti allaveg eitt klúður, sem ég get heyrt, en að öðruleiti MJÖG góð, kórinn var ekki eins góður og í fyrri verkum, en stóð samtu uppúr.  Þess ber einnig að geta að þetta var leikstjórnar frumraun Katharinu Wagner, barnabarns Richard Wagners.

Púað var stanslaust í lokin í langan tíma og fólk strunsaði úr salnum, notabene flesta allt gamla bitra fólkið. Ég var í raun hæst ánægður með þetta, en fátt nær að komast þar sem Tannhauser hafði hælana í þetta skiptið.

Þetta er orðið allt of langt, vonandi var samt gaman að lesa.

Meira síðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 09:52:53 / egill

Festspiele 2007 - Tannhäuser - R.Wagner

Tannhauser

Áður en ég segi nokkur orð um sýninguna, langar mig aðeins að lofta út varðandi eitt atriði.  En það eru reykingar söngvara!  Hversu heimskt þarf fólk að vera eiginlega?   Ég skil nú að fólk sem ekki þarf að treysta á röddina sína til lífsviðurværis gefi sig á vald reykinganna, en söngnemar sem hafa hlotið sérstaka viðurkenningu Wagner félaga víða um heim að koma hingað og njóta alls þess besta úr smiðju Wagners,  að þetta lið skuli vanvirða hljóðfærið sitt og tónlistina með þessum hætti er alveg óskiljanlegt!!  Hvað er að þessu liði!?!

Jæja nóg um það....Tannhäuser.

Sýningin var aðeins rétt rúmir 3 tímar, ótrúlega þægilegt.   En það sem skapaði vandamál var gífurlegur lofthiti sem svo sannarlega skilaði sér inn í salinn.  En það skemmdi sko ekki mikið fyrir get ég sagt ykkur, því þessi upplifun var ein sú flottasta sem ég hef upplifað í óperuhúsi.   Sviðsmynd og lýsing var svo hrikalega vel saman setta að þetta var eins og að horfa á kvikmynd með tæknibrellum nútímans.   Söngur fannst mér góður, tumtalsverður rembingur hjá tenórnum, Frank van Aken,  og svona smámunir fóru í taugarnar á mér, en skemmdu alls ekki sýninguna.  Sérstaklega þótti mér mikið til Hjarðmeyjarinnar koma, dáleiðandi söngur á ótrúlega fallegri aríu, það var Robin Johannsen sem afgreiddi það svo snilldarlega.  Aftur verð ég að hrósa kórnum, aldrei hef ég upplifað eins rosalegan karlakór eins og þann sem þarna var.  Ég get viðurkennt það að ég grét af einhverskonar gleði alsælu þegar kom að hinum fræga Pílagrímakór, upplifunin var svo sterk að um mig hríslaðist öflug gæsahúð.  Þessu var svo fylgt eftir með hinu hrikalega flotta "O du mein holder Abendstern", sem ég hef sjaldan heyrt eins nærfærnislega gert, barvó! Það var hin flotti Roman Trekel sem átti heiðurinn af því.
Þessi sýning var án efa með því besta sem ég hef séð á óperusviði.
  
Mér þykir mjög fyndið þegar kemur að hléum, að þá flykkist ríka og frægafólkið út í Bratwurst, þar er alltaf mjög long biðröð.  Og að sjá fínasta fína fólkið, troða í sig pylsu í brauði sem lítur mun subbulegri út en hin hefðbundna "hot-dog", með of miklu sinnepi og tómatsósu, er bara alveg bráðfyndið.

Jæja, hin 5 klst langa "Die Meistersinger Von Nürnberg" í kvöld, síðasta sýningin í bili, og eftir það er það Berlín eldsnemma í fyrramálið.

Umföllun um Meisternsinger verður væntanlega komin inn á morgun.

Hér kemur svo mynd af "þægilegu" stólunum í Festspielhaus


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 10:17:14 / egill

Festspiele 2007 - Parsifal - R.Wagner

Parsifal,

Jæja hvar skal byrja það er nú spurningin.....

Ég sá þetta sögufræga óperuhús Wagners í fyrsta skipti í dag.  Mér þótti mikið til koma, og hlakkaði mikið til að setjast inn og sjá mína fyrstu Wagner óperu.  Sýningin byraði kl 16:00.  Ég viðurkenni að ég þekkti lítið til óperunnar áður en ég fór, og var því búinn að kynna mér hana lítillega með lestri.  Það sem tók við mér þegar ég gekk í salinn voru alveg ótrúlega óþægileg sæti.  En það skemmdi svosem ekki alltof mikið fyrir.   Ég vil bara byrja á að taka það fram að mér þótti söngurinn og túlkuninn framúrskarandi hjá öllum söngvurunum þetta var ótrúlega jafnt á heildina litið, engin stóð þó sérstaklega uppúr að mínu mati.  Ss stórgott í alla staði hvað það varðar.

Langstærsti ókosturinn við þessa sýningu var sá að þetta var eins og svo vinsælt er að gera þessa dagana, eða einhverskonar hálf-nútíma-hálf ævintýra uppfærsla.  Og verð ég að viðurkenna að ég skildi ekki upp né niður í neinu sem var að gerast, þó ég hafi alveg verið með á nótunum hvar í söguþræðinum við vorum stödd.   En bara til að gera langa sögu stutta.  Þá voru þarna karakterar sem ég bara skildi ekki, eins og t.d: gamla konan í hlébarða blússunni, gamla dvergvaxna konan í bleika brúðarmeyjakjólnum með flöskubotnagleraugun, Mongólítaparið, akfeita bera-að-ofan svertingjakonan, ungi Jesúinn.  Ég er mikið búinn að reyna að átta mig á tilgangi þessara karaktera, og eftir því sem ég kemst næst, er feita svertingjakona líklegast einhver vísun í Gralinn, en hún átti það til að annaðhvort hringsnúast á sviðinu eða liggja á sviðinu og engjast um.  Við fengum einnig að njónta þess að sjá videómyndir af henni þar sem einhver vökvi lak úr fellingunum á henni meðan einhverjir gaurar í hálfgerðum KuKluxKlan búningum voru að slátra kjúklingi og dreifa fjörðunum út um allt (ég er ekki að skálda þetta).   Ég reyndi af almætti að setja alla þessa vitleysi í samhengi við söguna en allt kom fyrir ekki.   Nú svo ég haldi áfram, þá var  vondi kallinn svertingi, og allir hans fylgismenn, á meðan góðu kallarnir voru hvítir.  Spjótið fræga sem notaðist til að bjarga Parsifal með því að gefa til kynna að hann væri "sá upplýsti" var einhverskonar stafur með krók á endanum, ótrúlega hallærislegt. Nú svo í lok sýningarinnar, fengum við að fygjast með hundshræji rotna, það var nú áhugavert, og eftir stóð að áhorfendur púuðu all duglega í lok sýningarinnar.  En gáfu tónlistarfólkinu að sjálfsögðu það lof sem það átti skilið. 

Karlakórinn sem fór með lítið en mikilvægt hlutverk var ótrúlega flottur, og maður bráðnaðu gjörsamlega við það hversu flott þetta var gert. Hljómsveitin var sömuleiðis æðisleg. 
Sýningin tekur um 4klst og 15 mín í flutningi.  Með tveimur klukkutíma hléum má segja að reynslan sé um 7 klukkutímar.  Sem er alveg mesta furða að maður skuli þola.

Þá er bara að bretta upp ermarnar og undirbúa Tannhauser og Meistarasöngvaranna sem eru á miðvikudag og fimmtudag.  Ég mun að sjálfsögðu reyna að skrifa gagnlega umfjöllun um þær sýningar líka :)

 Annars er lífið hér í Bayreuth ótrúlega þægilegt, gott veður og hrikalega góður heimsþekktur Weissbier sem bruggaður er hér á staðnum, notalegur lítill bær og vingjarnlegt fólk.   Maður hefur lítinn tíma til að hanga á kaffihúsum þar sem internetið er til staðar, því dagskráin er mjög þéttskipulögð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 08:32:02 / egill

Komin tími á aðra svona færslu :)

Ekki er þetta í fyrst skipti sem mér hefur ofboðið svo svakalega óupplýstar skoðanir annara að ég bara hreinlega verð að skrifa smá um það sjálfur :)
Greinin sem um ræðir er hér

Það eru alltaf til þeir sem reyna að einfalda hlutina og gera þá hlægilega og bjánalega til þess eins að verja glataðan málstað.    Þessi  pistill hans gerir einmitt það, að mínu mati.  Og fyrirsögnin segir allt sem segja þarf um það mál.   Enn og aftur fara stuðningsmenn reykinga í einhverja frelsisbaráttu, og láta þetta allt líta út eins og sé verið að fótumtroða og hreinlega svipta vitiborna einstaklinga einhverju frelsi eða mannréttindum.  Vissulega er það frelsi og mannréttindi að fá að reykja, alveg eins og að fá að dæla í sig þeim eiturlyfjum sem manni sýnist.  Munurinn hérna er sá að annað er löglegt en hitt ekki.   En snúast lög ekki einmitt um boð og bönn?  Ef á að fara spila út því spili, að setja lög á reykingar sé mannréttindabrot, þá má alveg eins afnema hámarkshraða á vegum landsins, slökkva á öllum umferðarljósum, hætta með tollgæslu og eftirlit á flugvöllum heimsins osfrv.   Auðvitað er það eitthvað sem væri bara algjör snilld fyrir okkur öll, hugsið ykkur frelsið að mega bara gera það sem okkur sýnist algerlega óháð öðrum!  Þvímiður þurfa að vera reglur, og það að nýjar reglur séu settar á, þýðir einfaldlega að það eru breyttir tímar.  En þvímiður eru reykingar einn af þessum hlutum sem einhvernvegin hafa sloppið í gegnum allar síur, einfaldlega vegna þess að áhrif þeirra voru lítt þekkt.  Það sama gerist með lyf og annað sem er að koma á markað, um leið og einhverjar slæmar aukaverkanir koma fram er sölu þeirra hætt.    Tóbak nýtur sérréttinda sem eiga sér sögulegar forsendur, og þar stendur hnífurinn í kúnni.  Þetta er fíknilyf sem lætur því fólki sem það notar, líða vel á einhvern hátt, því eru viðbrögð reykingamanna við banninu skiljanleg.  Sömu viðbrögð má að vissu leiti greina meðal eiturlyfjaneytenda og alkóhólist sem eru að reyna að hætta, eða eru „settir“ í meðferð. (ath ég er ekki að leggja þetta algerlega að jöfnu)

Á meðan 80% íslensku þjóðarinnar reykir ekki ætti það að vera þeirra vilji sem ræður, og það eru okkar kosnu fulltrúar sem taka þá ákvörðun, að hagur 80% þjóðarinnar sé meiri en hagur þeirra 20% sem reykja.  Það er mjög fátt óeðlilegt við þessa lagasetningu.   Að kalla þá sem ekki reykja, eða um 80% þjóðarinnar, ofstopafólk, þykir mér ótrúlega skrítið.  Og þetta ofstopafólk  er að auka þægindi sín á kostað annarra......bíddu nú við....hvaða þægindi eru það??  Að borða í tiltölulega hreinu lofti? Að skemmta sér án þess að anda að sér eiturlofttegundum frá öðru fólki?  VÁÁÁ þvílík þægindi!!  Að gera það tilkall til umhverfisins að maður geti andað að sér hreinu lofti er ekki hægt að kalla þægindi, heldur sjálfsögð mannréttindi.  Og mannréttindi vegna þess að andrúmsloftið sem heimurinn hefur upp á að bjóða er í eðli sínu hreint og er ætlað þannig til manneldis, því er það mannréttindabrot að þeir sem ekki reykja geti ekki farið á þá skemmtistaði eða veitingahús sem hugirinn stendur til,  án þess að þurfa að anda að sér eitruðu og óhreinu lofti.  Það er alveg óskiljanlegt að fólk sem er búið að ganga í gegnum háskólanám skuli ekki hafa gáfnafar til að sjá rökleysuna og vitleysuna í eigin málflutingi.    

Með síðustu orðum pistilsins, gerir greinarhöfundur sig að algeru fífli í mínum huga.   Og ég svara því svo:    Svo lengi sem við höfum lög og reglur, eru ekki til raunverulegir frjálshyggjumenn.   Ef ég er ekki frjálshyggjumaður bara fyrir það eitt að fagna reykingabanninu, þá er skilgreiningin á frjálshyggu bara heimskulegt orðagjálfur.  Ég hefði haldið að fólk sem fast er í fíkni sé ekki frjálst.  Og þarafleiðandi get ég sem frjálshyggjumaður auðveldlega fagnað reykingabanninu.  Fólk sem ekki reykir á ekki að þurfa að líða fyrir það, og greinahöfundur er á svo miklum villigötum með yfirlýsingum sínum um að þeir sem ekki reykja séu að kaupa sér þægindi með þessari lagasetningu að það hálfa væri nóg.  Því hann er að gleyma því að reykingamenn eru einmitt að kaupa „þægindi“ sín með kaupum á tóbaki.   Frelsi einstaklings og mannréttindi er eitthvað sem reykingamenn traðka á á hverjum degi, því ég á alveg eins að geta gengið um götur borgarinnar, farið á hvaða skemmtistað sem ég vil og hvaða veitingahús sem ég vil án þess að þurfa að anda að mér reyk.   


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 11:35:27 / egill

Já já, þetta er bara svona....

Í fyrsta lagi langar mig að byrja á að óska mér og öllum öðrum sem ekki eru háðir fíknilyfjum, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN.  Þetta eru auðvitað alveg ótrúlega flott tímamót, og það sem er skrítnast við þau er að þetta skuli ekki hafa gerst miklu miklu fyrr.  Ef maður bara horfir á þessa athöfn "að reykja" er tiltölulega auðvelt fyrir eðlilegt fólk að sjá hvað þetta er bæði heimskulegt og skaðlegt.  Það þarf ekki miklar gáfur til að sjá það, en það segir greinilega meira um þá sem reykja en okkur hin.

Eflaust voru einhverjir sem sáu mynd af mér í mogganum í áheyrnarprufum hjá Einari "umboðsmanni Íslands" Bárðarsyni.   Ekki varð neitt úr því að þessu sinni, enda skildist mér á Einari að þetta væri ekki mikið fyrir mig, þar sem ákveðið var að setja saman frekar svona "stráka-nylon" heldur en eitthvað svona "Il Divo" dæmi.  Hvað getur maður sagt, það er erfitt að vera klassískur söngvari á íslandi :)

Annars er bara komin ró yfir mann þessa dagana, það er skrítið að vakna ekki á hverju morgni og undirbúa eitthvað eða gera raddæfingar.  En svona er það bara.  Útskrifatrtónleikar gengu bara mjög vel og ég er sáttur.   Hvað maður gerir svo næsta vetur veit ég ekki, það er óþægilegt á sama tíma og það er pínulítið spennandi.   Ég held mér bara opnum fyrir flæði peninga inn í mitt líf þannig að ég geti farið og lært meira á röddina í Bandaríkjnum, sem er það sem mig langar til að gera.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 12:03:34 / egill

Dimmi og Bryn

Ég upplifði svakalega tónleika um helgina.

Fyrst ber að nefna Dimitri Hvorostovsky, sem ég hafði svosem ekkert rosalegt álit á fyrir tónleikana (kannski afþví að ég hef ekki heyrt það oft í honum), en það sem ég upplifði var bara nánast hrein fullkomnun.  Á efnisskránni var tónlist eftir Rússnesk tónskáld og að mestu tónlist sem ég hef bara aldrei heyrt.  En samt naut ég hverrar einustu mínútu.   Það var ótrúlega gaman að sjá hvað hann hafði ótrúlegt vald á röddinni og tæknilega var þetta auðvitað eins nálgægt fullkomnun og maður vill komast sem söngvari.  Túlkun og annað skipti mig ekki miklu máli hjá þessum manni.  Þó hún hafi vissulega verið til staðar, og maður greindi vel þær mismunandi tilfinningar sem hann var að túlka, aðallega þó í gegnum röddina.

Bryn Terfel var svo í gærkvöldi, og sá maður hefur alveg gífurlegt charisma, en heillaði mig ekki eins mikið og Hvorostovsky.  Það er kannski að vissuleiti vegna mikilla tæknipælinga að minni hálfu.   En það var augljóst hvað það skiptir miklu máli að vera í góðu sambandi við áhorfendur.   Það kom berlega í ljós þegar Terfel ruglaðist í texta í uppklappslagi.  Hann einfaldlega gerði bara grín og byrjaði aftur.  Ég hefði ekki getað séð það gerast hjá Hvorostovsky.   Terfel virtist ekki eiga eins auðvelt með hæðina og kollegi hans, en hann þurfti að nota líkamann meira til að henda útúr sér tónunum :)  En mjög vel sungið samt sem áður og ég var bara nokkuð sáttur.

En þegar á botninn er hvolft eru Hvorostosky tónleikarnir þeir sem munu verða mér eftirminnilegir næstu árin.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 16:46:59 / egill

Tónleikar með ykkar heittelskaða á Föstudag

Þá er maður að útskrifast í síðasta skipti frá Söngskólanum í Reykjavík og í tilefni af því verð ég með tónleika í Langholtskirkju föstudaginn 18.maí kl 20:00

Léttar veitingar eftir tónleika í safnaðarheimili.

Smellið á mundina til að sjá stærri tilkynningu. Ef þið vitið um einhvern sem gæti haft áhuga á þessu, vinsamlegast láta viðkomandi vita.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 21:49:32 / egill

Kjósum ruglið, kjósum geðveikina...

Nú styttist auðvitað í sama ruglið og venjulega, þ.e kosningar.   Sem ég er í sjálfu sér algjörlega hættur að fylgjast með.

Ég ákvaða að setja fram skilyrið sem stjórnmálaflokkur þarf að uppfylla til að hljóta mitt atkvæði:
Upptalningin hér að neðan er ekki grín.

1. Lögleiða þarf fíkniefni, og leyfa sölu þeirra í apótekum.  Leyfa fólki í krabbameinsaðgerðum að rækta og nota kannabisefni.

2. Afnema þarf stimpilgjöld og verðtryggingu

3. Afnema þarf tolla og gjöld af öllum vörum sem maður kaupir sér af netinu.

4. Afnema þarf takmarkanir á því áfengi eða raftækjum sem maður má taka með sér til landsins.

5. Leyfa þarf sölu léttvins í matvöruverslunum.

6. Tónlistarnám og meðferð peninga þarf að vera hluti af námsskrá grunn og menntaskóla.

7. Afnema stuðning við þjóðkirkjuna, eða jafna stuðning við öll trúfélög í samræmi.

8. Afnema RUV skattinn

9. Leyfa þeim sem vilja starfa við vændi að gera það undir eftirliti, eins og í Hollandi.

10. Hækka skattleysismörk í 150.þús krónur.

11. Tóbak verði aðeins selt í apótekum, og á mun hærra verði en áður þekkist.  Þar sem um verulega ávanabindandi (ó)lyf er að ræða.

12. Virkara eftirlit með verðlagi á fjarskipta og eldsneytis fyrirtækja.

13. Gjaldfrjálsar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

14. Skattar og tollar á lyfjum afnumdir

15. Tvöfalda alla stóra vegi á landinu og hækka hámarkshraða í 110 og 90 innanbæjar.

16. Afnema algerlega skatta og gjöld af umhverfisvænum bílum

17. Lækka fasteignagjöld um 50% eða aðrar ívilnanir fyrir fólk sem endurvinnur.

18. Afnema lífeyrissparnað í ríkissjóð, en skylda fólk til að spara í sjóði að eigin vali.

19. Lækka umtalsvert skatta og gjöld af ónegldum heilsársdekkjum.

20. Rýmka og breyta lögum og reglugerðum varðandi fóstueyðingar og frjósemisaðgerðir.

21. Beina löggæslu að raunverulegum glæpum í stað þess að hrella borgara landsins.

22. Hægt verði að kjósa fólk en ekki flokka.

23. Hætta alltaf að banna allan andskotan, þar sem það hefur aldrei leyst nein vandamál!!

Ef þú ert ósammála ekki vera kommenta, því það hefur ekkert upp á sig.  Þetta er mín skoðun og ég þarf ekki að réttlæta hana fyrir einum eða neinum, þó ég geti það auðveldlega.

Eflaust eru fleiri mál sem þarf að bæta hérna inn en þetta er það sem ég man eftir í fljótu bragði.  Stjórnmálaflokkur sem vill fá mitt atkvæði þarf að uppfylla hvert einasta atriði á listanum annars tekur það því ekki fyrir mig að fara kjósa.

Nú er ég farin til Berlínar, heyrumst síðar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 10:18:27 / egill

Næst á dagskrá..

Óperuballið mikla er á næsta leiti (30.apr) og mun ég skella mér á það að sjálfsögðu.   Nú svo tekur við Berlínarferð í 4.-11.maí, söngur í brúðkaupi 12.maí og svo Burtfarartónleikar mínir þann 18.mai kl 20:00 sem verða vonandi í Langholtskirkju.

 Þannig að það er slatti á döfinni hjá mér og mikið að læra á allt of stuttum tíma eins og venjulega, en maður reynir sitt besta :)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 12:48:22 / egill

Kominn heim!

Úff þá er maður loksins kominn heim á klakann.   Ég sit hérna í hálfgerðu köldu svitabaði en það eru eftirmálar þess að vera reyna að snúa við sólarhring.   Þetta er alltaf jafn óþægilegt, jafnast svona soldið á við slæma þynku. 

Soffía kom núna síðustu daga ferðarinnar og við ðskemmtum okkur mjög vel.  Sigldum framhjá frelsisstyttunni, borðuðum á Dallas BBQ, löbbuðum í Central Park, og versluðum.  Engin smá törn.    Veðrið var þvímiður ekki með besta móti, það var ískalt og vindasamt.  En síðasta daginn fengum við sæmilegt veður.

Ég er ánægður með afrakstur ferðarinnar, sem hefði ekki getað orðið ef ekki væri fyrir Baug Group, sem ég er innilega þakklátur fyrir að gera mér þetta kleyft.

Nú tekur við skóli og vinna á ný, gaman að sjá hvernig hlutirnir breytast þegar maður er í burtu í heilan mánuð. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 17:56:56 / egill

Hér gráta himnarnir

Já það er rignir bara og rignir hér í borg borganna.   Halda mætti að Jesús væri að fara deyja :)

Annars er bara allt fínt að frétta.   Kláraði að mixa allar upptökur í gær.  Loksins er það allt búið.   Þorvaldur og Ásta komu í gærkvöldi, og Soffía að koma í kvöld.   Þannig að hér verður nóg að gerast næstu daga.   Svo þarf ég þvímiður að koma heim á mánudaginn.   Ég gæti verið hér í nokkrar vikur í viðbót.   En til þess þarf umtalsvert fjármagn sem ég bara hef ekki ákkúrat núna.  En það kemur allt :)

Ég sit hér og bíð eftir því að komast í tíma sem er eftir 5 mín.   Er að hlusta á svaka flotta coloratur sópran sem er núna í tíma.

En svona er það.  meira síðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 11:50:56 / egill

Upptökur hinar seinni

Þá er upptökudegi hinum seinni lokið, og náðist að taka upp 3 lög í það skiptið.  Ég er bara nokkuð sáttur með útkomuna.  Og hérna er svo afraksturinn fyrir ykkur að hlusta.

Core 'ngrato

Vesti la giubba

Celeste Aida

Í gærkvöldi fór ég svo í létt eftirpartý hjá Dísellu Lárusdóttur, sem náði þeim svakalega árangri að vera "Finalist" í óperukeppni Metropolitan Óperunnar, hún vann þó ekki.  En kommon þetta er nú bara ótrúlegur árangur!! 

Jæja njótið vel og kommentið ef ykkur líkar :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10